Jæja.. ætli það sé ekki kominn tími á að rita niður nokkur orð
handa aðdáendum þessarar síðu sem maður heyrir að skipti
milljónum..
Á laugardaginn seinasta gerðum við held það fyndnasta sem
ég hef gert á minni lífsleið allri.. VIÐ TÓKUM VAKNINGU Á
HEMMANN!!! Þátttakendur voru ég, guzzarinn og gummi a.k.a. dj
gummo..
Þannig er mál með vexti að ég og ásta vorum nú bara í
rólegheitum heima hjá mér og klukkan farin að nálgast ellefu.. ég
ákveð að hringja í gústa til að spyrja hvað kjellinn sé að gera og
hvort hann vilji ekki heiðra okkur með nærveru sinni.. kjellinn
jánkar því og þá dettur mér allt í einu í hug hvort hann eigi sonna
video cameru eða geti reddað þannig og segi við hann að það yrði
náttlega geðveikt fyndið að taka vakningu á hemmann.. endar það
þannig að guz talar við ömmu sína og fær lánaða hennar cameru...
schnilld!!
Svo kemur gústi til okkar og byrjum við að taka upp smá
videódagbók.. þetta var bara byrjunin á ca. hálftíma löngu
myndbandi um vakninguna á hemma.. um kl. korter yfir ellefu tókum
við fyrsta skoðunarrúntinn að húsinu hans hemma.. þá er kallinn
ekki heima þar sem hann var að passa einhvers staðar.. þá brutumst
við inn til hans í gegnum bílsskúrshurðina og fundum út hvar hann
svæfi og náðum lykli að húsinu, drifum okkur svo út og í
burtu.. fórum aftur heim til mín og börðumst við það að vaka
eins lengi og við mögulega gátum..
Kl. rúmlega þrjú var síðan komið að því.. þvílíkur fiðringur í
maganum!!
Við tókum einn skoðunarhring í kringum húsið í viðbót til þess
að vera öruggir um að hann væri sofnaður og réðumst svo til
atlögu.. gústi var klæddur í snilldar scoopie-steve búning,
gummi með lambhúshettu og ég í kuldagalla og með snjósleðahjálm..
illa vígalegir.. við opnuðum að framan með lyklinum sem við höfðum
tekið og fórum inn í eldhús til þess að sækja okkur vatn sem ætlað
var til þess að hella yfir hann.. kveiktum síðan öll ljós..
læddumst inn í herbergið hans og skvettum á hann vatninu, rifum
sængina af honum og stukkum ofan á hann.. hemmi brást frekar illa
við.. eða eiginlega ekkert frekar.. hann SNAPPAÐI!!! Hljóp á eftir
okkur og reyndi að lumbra allhressilega á okkur og lamdi m.a. í
myndavélina þannig að hún fór í fokk..
En við náðum einhvern veginn í andskotanum að koma okkur út og
hlupum beint inn í bílinn hans gumma sem við höfðum skilið
eftir í gangi fyrir utan.. adrenlínkikkið í botni og allt að
gerast..
Það má með sanni segja að þessi vakning hafi heppnast
fullkomlega og eigum við hana á spólu og er þetta mesta snilld sem
við höfum nokkurn tímann augum litið..
En allavega Hemmi minn.. þetta var ekkert illa meint! Við elskum
þig og bjuggumst ekki við að þú tækir þessu svona illa.. við vitum
að þú ert búinn að lýsa yfir garpastríði og bíðum
spenntir...